
Áfangastaðir 2012
| 4. - 5. maí |
Kirkjubæjarklaustur |
| 11. - 12. maí |
Siglufjörður og Ólafsfjörður |
| 16. og 19. maí |
Grindavík |
| 25. - 26. maí |
Ísafjörður |
Fréttir og viðburðir
- 25. ágú. 2011
Fjölsótt vísindaveisla á Egilsstöðum - 15. ágú. 2011
Háskólalestinni mætti ást og kærleikur - 08. jún. 2011
Fulltrúar allra landshluta í HUF

Á hundrað ára afmæli Háskóli Íslands 2011 var tímamótunum fagnað víða um land með svokallaðri Háskólalest sem ferðaðist um landið við miklar vinsældir. Lögð var áherslu á lifandi vísindamiðlun til ungs fólks og fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Viðtökur voru með eindæmum góðar og fjölmenntu landsmenn á öllum aldri á viðburði Háskólalestarinnar.
Vorið 2012 leggur lestin af stað á ný með fræði og fjör fyrir landsmenn. Í maí verða heimsóttir fjórir áfangastaðir; Kirkjubæjarklaustur, Siglufjörður, Grindavík og Ísafjörður.
Í Háskólalestinni verða valin námskeið úr Háskóla unga fólksins fyrir grunnskólanemendur, en að auki verður slegið upp litríkum vísindaveislum fyrir alla heimamenn með stjörnuveri, sýnitilraunum, eldorgeli, mælingum og pælingum, að ógleymdu Sprengjugenginu landsfræga.
Áhöfn Háskólalestarinnar þakkar landsmönnum ógleymanlegar viðtökur á liðnu ári og og býður alla hjartanlega velkomna í Háskólalestina 2012.
Áætlun Háskólalestarinnar í maí 2012:
Kirkjubæjarklaustur 4. og 5. maí
Siglufjörður 11. og 12. maí
Grindavík 16. og 19. maí
Ísafjörður 25. og 26. maí.




