Hér fyrir neðan má sjá þau námskeið sem kennd voru í Háskóla unga fólksins dagana 10.–12. júní 2026.
Námskeið fyrir Háskóla unga fólksins dagana 14.–16. júní 2027 verða birt í byrjun maí 2027.
Dagskráin er fjölbreytt og gefur þátttakendum kost á að kynnast ólíkum vísindagreinum á skemmtilegan og fræðandi hátt.
Smellið á heiti námskeiðanna til að lesa nánar um þau.
Í Háskóla unga fólksins er hægt að velja á milli 14 fjölbreyttra stundataflna, sem hver um sig inniheldur fjögur námskeið og einn þemadag.
Í boði eru námskeið af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands, meðal annars í félagsvísindum, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum, verkfræði, raun- og náttúruvísindum og þverfræðilegum greinum.
Fræðafólk og framhaldsnemar við Háskóla Íslands hafa umsjón með flestum námskeiðunum.